- Veftímarit um fullorðinsfræðslu

- Veftímarit um fullorðinsfræðslu

„EKKI GEFAST UPP“

– Færni á vinnumarkaði er nám sem opnar dyr að atvinnulífinu fyrir fólk með fötlun á Íslandi

Fyrir tveimur árum var hrint í framkvæmd náminu Færni á vinnumarkaði fyrir fólk með fötlun á Íslandi til að auka tækifæri þess til að verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Þörfin reyndist mikil. Verkefnið samanstendur af bæði námi og starfsþjálfun. Að lokum fá þátttakendur skírteini – Fagbréf atvinnulífsins. Fagbréfið hefur opnað dyr að starfi fyrir marga þátttakendur, á meðan aðrir hafa nýtt tækifærið til að leggja stund á frekara nám. Nú er verkefnið í hættu vegna skorts á fjármagni og stuðningi frá yfirvöldum.

Að baki verkefninu standa þrjár stofnanir: Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fjölmennt og Vinnumálastofnun (VMST). Og bjóða símenntunarmiðstöðvar um allt land uppá námið. Fyrirtækin hafa opnað dyr sínar og bjóða uppá starfsþjálfun samhliða náminu.

Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri FA.

Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) segir að aðsóknin í námið Færni á vinnumarkaði hafi farið langt fram úr væntingum og þörfin sé mun meiri en fyrir fram hafði verið talið. Af þeim 115 einstaklingum sem hafa tekið þátt undanfarin tvö ár hafa 90 útskrifast. Þau hafa fengið í hendur Fagbréf atvinnulífsins, sem staðfestir hæfni þeirra á móti hæfnikröfum starfsins. Sumir nemendanna eru þegar komnir á vinnumarkaðinn eða eru að leita sér að frekara námi.

Allir ættu að hafa tækifæri til að taka þátt í samfélaginu

„Brýnt er að allir í samfélaginu hafi aðgang að fjölbreyttu úrvali af námi og störfum. Það eru ekki bara þátttakendurnir sem njóta góðs af þessu. Þetta snýst líka um vinnumarkaðinn, menntakerfið og samfélagið í heild. Við tilheyrum samfélagi og það er mikilvægt að allir geti nýtt hæfileika sína og fundið sinn stað þar sem þeir dafna og leggja sitt af mörkum“ segir Betty. Hún segir að námið þurfi að festa frekar í sessi innan menntakerfis og atvinnulífs og  að fjármögnun sé tryggð til framtíðar.

Þegar er orðið ljóst að námið hefur breytt lífi margra þátttakendanna. Fyrir suma hefur það eflt sjálfstraust, nýja þekkingu og tengsl. Fyrir aðra hefur það opnað dyr út í atvinnulífið. Í öðrum tilfellum hafa nemendurnir fundið sig í náminu  og valið að halda áfram í frekara nám.

Saga um velgengni í sjónvarpinu

Ríkissjónvarpið sýndi nýlega velgengnissögu um ungan mann, Daníel Smára Bjarnason, sem hafði ekki verið virkur í vinnu eða námi. Árið 2024 hafði hann náð botninum og allt virtist vonlaust, en svo skráði hann sig í námið Færni á vinnumarkaði. Hann er nú í fullu starfi og nýtur hvers dags með samstarfsfólki sínum. Í viðtalinu ráðlagði hann öðru ungu fólki að gefast ekki upp. 

„Það er það hættulegasta sem getur komið fyrir nokkurn mann“ sagði hann.

Það sem ég er stoltust af

Eftir sjónvarpsviðtalið tjáði Sara Dögg Svanhildardóttir hjá Vinnumálastofnun sig um sögu Daníels. Hún lýsti henni sem einu því fallegasta sem hún hefði séð í sjónvarpi.

„Menntun fyrir þennan hóp í samfélaginu er svo mikilvægur lykill að auknum lífsgæðum og þátttöku í atvinnulífinu“ skrifar hún.

Vinnumálastofnun er einn af þremur aðilum sem komu verkefninu á laggirnar árið 2024. Sara segir að þetta verkefni sé eitt af því sem hún sé stoltust af á ferli sínum. Hún leggur áherslu á hversu mikilvægt það er að miðla verkefninu og halda áfram að beita því í þágu fólks með fötlun og fyrir samfélagið í heild.

Forfallinn bíladellumaður

Viktor Bjarnason er bílaáhugamaður og vonast til að finna framtíðarstarf á bílaverkstæði.

Viktor Bjarnason frá Selfossi er 22 ára gamall með einhverfu og lesblindu. Hann ákvað að skrá sig í námið Færni á vinnumarkaði á Selfossi og fannst spennandi að taka þátt í því. Hann var einn átta nemenda í hópnum og í dag er hann virkur í atvinnuleit og langar helst að vinna við starf sem tengist bílgreinum.

„Ég var að vinna á minkabúi þegar ég komst að því að það væri mögulegt að taka þátt í náminu. Ég er forfallinn bíladellumaður. Þegar ég komst að því að ég kæmist í starfsþjálfun á bílaverkstæði fékk ég strax áhuga. Sá hluti námsins sem snerist um skólagöngu var stundum mjög spennandi og stundum ekki eins spennandi. Tíminn á verkstæðinu var frábær!“

Vinnustaðurinn heitir Vélaverkstæði Þóris og Viktor framkvæmdi eftirlit, gerði við bremsur og ekki síst fékk hann tækifæri til að læra að logsjóða, sem hann er mjög stoltur af.

„Ég á Benz í dag og hef lengi haft mikinn áhuga á bílum. Þess vegna hentaði þessi vinnustaður mér vel. Vinnuandinn á verkstæðinu var góður og ég naut þess í botn. Þetta nám hefur eflt sjálfstraust mitt. Þegar ég fæ fasta vinnu vil ég flytja út úr foreldrahúsum og stofna eigið heimili“ segir Viktor.

Fann vinnustað til framtíðar

Dagur Nino Vilberg Sigurðsson er einn þeirra sem lauk náminu hjá Mími í Reykjavík.

Dagur Nino Vilberg Sigurðsson tók þátt í sama námi og Viktor og Daníel, en sótti það hjá Mími í Reykjavík. Hann hafði verið atvinnulaus í nokkra mánuði þegar hann fékk kynningu hjá Vinnumálastofnun um þetta nám og ákvað að skrá sig. Hann hafði engu að tapa.

„Ég lærði margt gagnlegt, meðal annars um samvinnu á vinnustað og hvernig verkalýðsfélög starfa. Ég fékk pláss í starfsþjálfun í stóru vöruhúsi hjá fyrirtæki sem heitir John Lindsay í Reykjavík“.

Degi var vel tekið og honum leið vel á vinnustaðnum. Þess vegna þáði hann tilboð um að halda áfram í 50% starfi eftir að námi loknu. Hann tekur strætó eða gengur til og frá vinnu og er sáttur við þá daglegu rútínu sem fast starf skapar.

„Þetta er góður vinnustaður og starf mitt er að hella kryddi í glös. Ég á góða vinnufélaga og ég sé þennan stað sem framtíðar vinnustað fyrir mig“ segir hann.

Aðstoð við fatlað fólk

Haustið 2025 hóf Háskólinn á Akureyri (HA) tveggja ára diplómanám fyrir fatlaða nemendur. Skólinn sérhæfir sig í fjarnámi og persónulegum samskiptum milli nemenda og kennara. Námið fyrir þetta unga fólk byggir á þessum tveimur meginstoðum, ásamt virkri notkun gervigreindar og öflugum tölvustuðningi.sem hófu nám síðasta haust í HA er Karen Alda Mikaelsdóttir Ottesen, 31 árs gömul. Hún er ein af þeim sem hafa lokið náminu Færni á vinnumarkaði hjá SÍMEY, símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar. Hún sótti síðan um diplómanám við HA og hefur nú lokið um það bil helmingi námsins til að öðlast diplómu með sérhæfingu í umönnun og stefnir að því að útskrifast vorið 2027.

Karen Alda Ottesen stundar nú nám við HA.

„Ég komst að því í gegnum bestu vinkonu mína að hún hefði sótt um og ætlaði að byrja í háskóla. Hún hvatti mig til að sækja um, en ég hafði ekki mikla trú á að ég kæmist inn vegna ýmissa hindrana í mínu lífi“.

„Meðan ég var í grunnskóla hér á Akureyri var ég lögð í einelti. Að lokum flutti ég til höfuðborgarinnar og lauk grunnskólanámi mínu í sérskóla. Ég átti erfitt uppdráttar og eineltið tók sinn toll. Ég varð hrædd við fólk og átti erfitt með að eignast vini. Ég hafði enga löngun til að fara í skóla og einangraðist. Sérskólinn gerði mér gott. Þar eignaðist ég vini og lauk því námi“.

Karen Alda segir að í dag gangi henni vel og býr í íbúð á sambýli, þar sem hún fær þann stuðning sem hún þarfnast.

Þurfti hvatningu

„Ég hafði reynt að fara í framhaldsskóla en það gekk ekki fyrr en ég hætti að drekka. Það var ekki fyrr en ég fékk tækifæri til að taka þátt í náminu hjá SÍMEY að hlutirnir fóru að ganga vel hjá mér. Ég lærði margt gagnlegt um hvernig það er starfa á vinnumarkaði. Auk þess komst ég í samband við annað fólk. Nú finn ég tilgang með lífinu og það er mér mjög mikilvægt. Áður en ég byrjaði að læra í SÍMEY i var lífið í kringum mig eintóna og ég þurfti hvatningu og tilgang, sem ég fékk þar“.

Karen Alda segir að háskólinn hafi tekið henni á jákvæðan hátt og hún hafi upplifað sig velkomna, en hún segir að í fyrstu hafi hún talað niður námið sitt: 

„Það eina sem ég fæ er bara prófskírteini!“

Nú telur hún nám í háskóla vera mikinn sigur. Aðalhlutverk þessa nýja diplómanáms er að mennta fólk í umönnunargeiranum. Það felur meðal annars í sér þjálfun á því sviði. Hún er nú í þjálfun í Lautinni, stað fyrir fólk með geðraskanir.

„Mér finnst mjög gaman að vinna í Lautinni og sé það sem vinnustað minn í framtíðinni. Draumur minn er að hjálpa fólki með fötlun og áfengisvandamál og hjálpa þeim að komast áfram í lífi sínu“, segir háskólaneminn Karen Alda.

Gervigreind – gagnlegt tól 

Magnús Smári Smárason er yfirmaður þróunar og beitingu gervigreindar við Háskólann á Akureyri. Hann vann að þróun diplómanámsins við HA ásamt Söru Stefánsdóttur prófessor sem stýrir náminu. Markmiðið er að þróa gervigreindarþjón fyrir þennan nýja hóp nemenda, fólk með fötlun.

Magnús Smári Smárason er forstöðumaður þróunar á notkun gervigreindar fyrir nemendur með fötlun við Háskólann á Akureyri.

„Við vorum sammála um að byrja varlega. Hér vorum við að þróa tækni fyrir nýjan markhóp. Við byrjuðum á því að hitta foreldra og aðra ábyrgðaraðila og útskýra áætlanir okkar. Nemendurnir fá gervigreindarþjón sem hefur aðgang að námsefni þeirra, fyrirlestrum og námsáætlunum. Mér hefur verið sagt að þetta gangi mjög vel. Nemendunum finnst áhugavert að fara í háskóla og eiga aðgang að þessum verkfærum. Með þessari tækni er hægt að aðlaga námið að hverjum og einum og þeir geta tekið samræður sínar við þjóninn og kennara á eigin forsendum“.

Magnús Smári og Sara vörðu töluverðum tíma í að gera tæknina tilbúna til notkunar og tryggja að þessi gervigreindarþjónn hentaði  nemendunum. Markmiðið með þjóninum er að hvetja og vekja löngun til frekara náms. Magnús Smári segir að ætlunin sé að þróa þetta fyrir breiðari hóp nemenda. Hann segir að það sé alltaf þannig að fólk hafi sína styrkleika og veikleika. Ef þessi tækni er til staðar er auðveldara að afla sér þekkingar á sviðum sem maður hefur átt erfitt með.

Meiri eftirspurn en búist var við

Hildur Betty hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins segir að mikil vinna hafi verið lögð í að þróa námið Færni á vinnumarkaði í samvinnu við Vinnumálastofnun og Fjölmennt. Hún vonast til að yfirvöld veiti náminu nauðsynlegan stuðning til að það geti haldið áfram.

„Þörfin fyrir námið reyndist vera mun meiri en við gerðum ráð fyrir árið 2024. Kennsluefnið er tiltækt og það gekk vel að fá atvinnulífið til að spila með, sem var nauðsynleg forsenda. Nú vonum við að yfirvöld finni leið til að gera það mögulegt í framtíðinni að taka við nýjum hópum sem þurfa stuðning til að komast inn á vinnumarkaðinn“, segir hún að lokum.

Samantekt

Nám fyrir ungt fólk með fötlun á Íslandi, sem hófst fyrir tveimur árum, hefur reynst mjög vel. Það hefur hjálpað til við að koma þessum hópi í auknum mæli út á vinnumarkaðinn. Þeir sem ljúka náminu fá það sem kallað er Fagbréf atvinnulífsins. Nú er framtíð námsins í hættu vegna skorts á fjárhagslegum stuðningi frá ríkinu. 

Þrjár stofnanir bera ábyrgð á þróun námsins. Þær vonast til að lausn finnist til að halda áfram að veita fólki þetta tækifæri til að verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Samtöl við nokkra nemendanna staðfesta að fólk sér námið sem lykil að atvinnulífinu.

Byggt á grein frá Norræna samstarfinu um símenntun (NLL). Greinina má finna hér.

dr. Sigrún Stefánsdóttir

Dr. Sigrún Stefánsdóttir er fjölmiðlafræðingur og hefur sinnt fjölbreyttum störfum við fjölmiðla, auk þess að kenna fjölmiðlafræði á háskólastigi. Hún er fulltrúi Íslands í ritstjórn veftímarits NLL, Norræns samstarfs um símenntun. Sigrún situr í stjórn Nordisk Journalistcenter og skipuleggur námskeið á þeirra vegum fyrir norræna blaðamenn.

Lykilorð

Þessi vefur notast við vafrakökur til að mæla umferð og fyrir virkni síðu. Engar vafrakökur eru notaðar í auglýsingatilgangi