- Veftímarit um fullorðinsfræðslu

- Veftímarit um fullorðinsfræðslu

Nám á vinnustað hjá sveitarfélaginu Nacka í Svíþjóð á sviði vatns og fráveituþjónustu

Nám fer fram daglega á flestum vinnustöðum. En hvernig má gera þá hæfni sem verður til í starfi sýnilega?

Með raunfærnimati geta fyrirtæki eflt trú starfsfólks á eigin getu og stuðlað að vinnustaðamenningu þar sem nám er í öndvegi. Hér segir frá því hvernig Nacka vatns- og fráveituþjónusta vinnur að námi á vinnustað og raunfærnimati.

Frá árinu 2018 hefur vatns- og fráveituþjónusta (NVOA) hjá sveitarfélaginu Nacka í Svíþjóð, unnið að því að festa nám á vinnustað og raunfærnimat í sessi sem hluta af starfseminni. Markmiðið er að tryggja að starfsfólk búi yfir þeirri hæfni sem nauðsynleg er til að sinna störfum sínum. Jafnframt er unnið að því að innleiða markviss vinnubrögð og skýra verkferla til að tryggja kerfisbundna framkvæmd raunfærnimats. Þar sem stöðug og eðlileg starfsmannavelta er í starfsmannahópnum er mikilvægt fyrir NVOA að hlúa að námi og hæfniþróun starfsfólks. Mikilvæg spurning er hvernig megi taka á móti nýju starfsfólki með skipulögðum hætti og veita þeim markvissa aðlögun. Raunfærnimat í starfi veitir nýju starfsfólki skýra mynd af nýju faglegu hlutverki, í stað þess að fylgja aðeins því hvernig fyrri samstarfsmenn hafa unnið. Þannig skapast sameiginlegur skilningur á hæfnikröfum starfsins og skýrari umgjörð fyrir þá sem annast móttöku og leiðsögn nýrra starfsmanna,

– Einn sterkasti drifkrafturinn fyrir því að leggja áherslu á nám á vinnustað er að við þurfum að tryggja skilvirka byrjun í starfi. Jafnframt mikilvægt að allir eigi kost á símenntun, þar sem ný stafræn tækni og tæknilausnir eru stöðugt að ryðja sér til rúms, segir Lise-Lotte Björkman Averbo, deildarstjóri rekstrarstuðnings og mannauðsmála hjá fyrirtækinu. Auk þess væri bæði tímafrekt og kostnaðarsamt að taka starfsfólk frá daglegum störfum sínum og senda það í hefðbundið nám eða kennslu í kennslustofum.

Einn sterkasti drifkrafturinn á bak við fjárfestingu í námi á vinnustað er nauðsyn þess að ná árangri við upphaf starfs. Ein einnig símenntun fyrir alla því nú er sífelld stafræn umbreyting og ný tækifæri að koma fram, segir Lise-Lotte Björkman Averbo, mannauðsstjóri hjá NVOA.

 „Ein helsta ástæða þess að við leggjum áherslu á nám á vinnustað er að tryggja að starfsfólk fái markvissa og skilvirka þjálfun frá upphafi. Jafnframt þarf að stuðla að símenntun  fyrir allt starfsfólk þar sem stafræn þróun og ný tækni ryðja sér stöðugt til rúms,“ segir Lise-Lotte Björkman Averbo, mannauðsstjóri hjá NVOA.

Raunfærnimat sýnir sig þá að vera góður valkostur.

Raunfærnimat sem sparar kostnað

Raunfærnimat er leið til að draga úr kostnaði. Jafnframt er það aðferð til að bæta framboð á færni innan fyrirtækisins því stjórnendum verður ljóst hvaða sérþekking og færni er þegar til staðar innan fyrirtækisins.

Hjá NVOA byggist raunfærnimatið á efni um starfaprófíla frá vinnuveitendasamtökum sveitarfélaga, Sobona, og er unnið í nánu samstarfi við atvinnugreinasamtökin Sænska vatnið og Samtök fráveitu. Starfaprófílar eru notaðir sem tæki til að tryggja gæði framboðs á færni.

Matið hjá NVOA er framkvæmt af þjálfuðum matsaðilum, sem eru hluti af samstarfsfólki og/eða yfirmönnum starfsmannsins. Viðkomandi hefur lært hvernig framkvæma á matið á námskeiði hjá Sobona.

Sjálfsmat

Raunfærnimatið hefst á sjálfsmati, sem er mikilvægur hluti og starfsmennirnir sjálfir gera. Með sjálfsmatinu meta starfsmenn þekkingu sína og færni í tengslum við sína starfsgrein.

Áður en við innleiddum raunfærnimatið þurfti starfsfólkið að framkvæma sjálfsmat. Eitt af markmiðunum var að fólkið ígrundaði eigin þekkingu, segir Frida Bjerkman.

Áður en matið hófst framkvæmdi starfsfólkið sjálfsmat. Markmiðið var meðal annars að það sjálft leggði mat á og ígrundaði eigin þekkingu og hæfni, segir Frida Bjerkman, þróunaraðili á sviði hæfniþarfa hjá NVOA. Sjálfsmatið hjálpaði þeim jafnframt að átta sig á tilgangi og innihaldi raunfærnimatsins.

Sjálfsmatið er leið til að auka gagnsæi í raunfærnimatinu þannig að þeir sem eru að fara í gegnum matið sjái að markmiðið er ekki að hafa eftirlit með þeim. Þvert á móti veitir sjálfsmatið þeim fyrirfram innsýn í þau viðfangsefni og hæfnisvið sem raunfærnimatið mun taka til.

Að loknu sjálfsmati tekur matsaðilinn við.

Matsaðili framkvæmir mat og skráir þekkingu

Kenneth Sundström er hópstjóri jarðlagnatækni, deild sem vinnur með allt frá vatnslekum til skólpstíflna. Hann hefur starfað hjá NVOA í þrjú ár  og hefur lokið þjálfun Sobona sem matsaðili í raunfærnimati. Með þeirri þjálfun öðlaðist hann færni til að skipuleggja raunfærnimat, meta hæfni starfsfólks og skrásetja allt ferlið á réttan og faglegan hátt.

Kenneth Sundström, hópstjóri á sviði jarðlagnatækni telur að vinnan með raunfærnimatið hafi orðið skemmtilegri með tímanum. „Núna hlakka ég til þess þegar við munum taka upp nýja, sérhæfða hæfniþætti í raunfærnimatinu auk þeirrar breiðu grunnþekkingar sem við höfum öll náð tökum á,“ segir hann

– Mér fannst ferlið skemmtilegt og ég kynntist  samstarfsfólki mínu betur í ferlinu, segir Kenneth Sundström.

Kenneth fór ásamt þátttakandanum í gegnum nokkra mismunandi námsþætti sem voru hluti af matinu. Þar á meðal voru þættir sem sneru að fagþekkingu á vatnsveitu og fráveitu, auk þátta um lög og reglur á starfssviðinu og hæfni í starfi.

Matið byggðist á umfangsmiklu safni spurninga og framkvæmd þess var töluverð vinna. Kenneth áætlar að það hafi tekið um eina viku að meta hæfni hvers starfsmanns. Vinnuálagið var þó mismikið eftir bakgrunni og grunnleikni viðkomandi.

„Sumir eiga mjög auðvelt með að vinna í tölvukerfinu og svara spurningum. Aðrir eiga erfiðara með það þar sem þeir eru ekki eins vanir stafrænni tækni. Í sumum tilfellum hef ég þurft að fara í gegnum hverja spurningu í viðtalsformi, taka niður svör og skrá þau sjálfur,“ segir Kenneth Sundström.

Fyrstu matssamtölin tóku mjög langan tíma og framkvæmdin var nokkuð ómarkviss “,  en með tímanum öðlaðist Kenneth hins vegar meiri færni í að stýra matsferlinu.

– Með tímanum varð þetta skemmtilegra. Þannig að núna hlakka ég til þegar bæta þarf við nýjum starfstengdum þáttum við raunfærnimatið til viðbótar við þá   víðtæku grunnþekkingu sem við höfum öll náð tökum á, segir hann.

Hæfni matsaðila

Matsaðilar gegna mikilvægu hlutverki hjá NVOA.  Viðeigandi hæfni matsaðila er mikilvæg forsenda þess að raunfærnimat sé framkvæmt með vönduðum hætti.

– Matsaðilarnir þurfa bæði að búa yfir réttri faglegri hæfni og  njóta trausts  samstarfsfólks. Þetta er mikilvæg forsenda þess að matið sé talið sanngjarnt og endurspegli þá hæfni sem meta ái, segir Frida Bjerkman.

Kenneth Sundström segir að sér hafi þótt ánægjulegt að vera valinn til að gegna hlutverki matsaðila. Af lýsingu hans á starfinu má ráða að hann búi yfir tveimur mikilvægum eiginleikum matsaðila: hæfni til að hlusta og sveigjanleika.

 „Mér fannst mjög áhugavert að þurfa að laga nálgun mína að hæfni og þörfum hvers og eins,“ segir hann.

Öflugur stuðningur stjórnenda skiptir máli   

Forstjóri NVOA áttaði  snemma á því hvaða ávinningi  raunfærnimat gæti haft í för með sér fyrir stofnunina.  Bæði Frida og Lise-Lotte telja að öflugur stuðningur stjórnanda hafið skipt miklu máli fyrir farsæla framkvæmd verkefnisins.

 „Forstjórinn okkar skilur hversu mikilvægt er að tryggja nauðsynlega hæfni innan fyrirtækisins. Hann gerir sér grein fyrir því að það mun skipta sköpum í framtíðinni og að raunfærnimat er mikilvæg leið að því marki,“ segir Frida Bjerkman.

Önnur mikilvæg forsenda er sá stuðningur við breytingar sem stofnunin, sem er í eigu sveitarfélagsins, fékk til að innleiða og framkvæma raunfærnimatið.

Frida og Lise-Lotte leggja þó báðar áherslu á eitt: Raunfærnimat felur í sér breytingaferli sem tekur tíma. Því er mikilvægt að stofnanir eða fyrirtæki sem hyggjast innleiða raunfærnimat líti á það sem langtímaferli sem miðar að því að efla og tryggja hæfni til framtíðar.

Staðreyndir um svið vatns og fráveitu hjá Nacka

NVOA er í eigu sveitarfélagsins Nacka.  Hlutverk fyrirtækisins er að annast vatnsveitu- og fráveituþjónustu í sveitarfélaginu í samræmi við lög um almenna vatnsþjónustu. Jafnframt fer fyrirtækið með ábyrgð sveitarfélagsins á meðhöndlun úrgangs samkvæmt umhverfislögum.

Meira á sænsku um vinnu þeirra við raunfærnimat, hjá Sobona.

Um þjálfun matsaðila fyrir mat á raunfærni
Staðreyndir – þjálfun matsmanna

Staðreyndir um starfaprófíla 

Starfaprófílarnir eru þróaðir af Sobona í samstarfi við fulltrúa atvinnurekenda  fræðsluaðila, starfsgreina og aðila vinnumarkaðarins.

Atvinnurekendur, stéttarfélög og starfsgreinasamtök   meta reglulega hvort þörf sé á að uppfæra  starfaprófíla eða að þróa   nýja prófíla.

Upplýsingar hjá Sobona um landsbundna starfaprófíla fyrir vatnsveitu og fráveitu.

Upplýsingar hjá Sobona um aðra landsbundna starfaprófíla.

Lesa má nánar um raunfærnimat í framhaldfræðslu á Íslandi á heimasíðu FA

Upprunalega útgáfan af þessari grein var birt hjá Norræna tengslanetinu fyrir símenntun (NLL) og fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni. Greinina má finna hér.

Sara Rydin

Sara Rydin er sjálfstætt starfandi rithöfundur og skrifar um menntun, tungumál/samskipti, stafræn samskiptatæki og aðgengi. Bakgrunnur hellar liggur í málvísindum og máltækni ásamt því að starfa við ritstörf, greinaskrif, flytja fyrirlestra og vefnámskeið.

Lykilorð

Þessi vefur notast við vafrakökur til að mæla umferð og fyrir virkni síðu. Engar vafrakökur eru notaðar í auglýsingatilgangi